Fréttir
29.1.2009
ÞRÍHJÓL
Hér er eitt í trike deildina
24.1.2009
HARLEY
Ætli þeir í USA séu loksins búnir að fatta hverslags dót þetta er sem þeir eru að búa til??
Sala á Harley-Davidson mótorhjólum dregst saman um 58%
Harley-Davidson mótorhjólaframleiðandinn neyðist til að draga úr framleiðslu sinni og segja upp rúmlega 1100 starfsmönnum í kjölfar aðkomuviðvörunnar. Eftirspurn og sala á mótorhjólunum hefur dregist saman um 58% frá því 2007.
Dregið verður úr 13% áætlaðrar framleiðslu á árinu og þá verður 12% starfsmanna fyrirtækisins sagt upp störfum.
ÆÆ, En þeir hafa örugglega fullt að gera í varahlutaframleiðslu,
10.1.2009
TRUFLUÐ GRÆJA
Hérna er eitt sem er aðeins öðruvísi og miklu meira
http://www.totalmotorcycle.com/photos/2009models/2009-Yamaha-VMaxEuropeanEdition.htm

Hann er 200 hestöfl þessi
10.1.2009
Gold Wing 2009
2009 modelið af Gold wing með airbag.
Þetta er eitthvað fyrir dellufólkið allavega nóg af tökkum
http://www.totalmotorcycle.com/photos/2009models/2009-Honda-GL1800AD-Airbag-GoldWing.htm

10.1.2009
MÓTORHJÓLASAFN ÍSLANDS
9.1.2009
SUZUKI
FRÁBÆR ÞJÓNUSTA HJÁ ÞEIM Í SUZUKI UMBOÐINU.
Mig langar að segja frá því að mér stóð nú ekki alveg á sama þegar ér var farinn að finna þessa fínu frostlögslykt í hvert skipi sem ég fór út að hjóla á Súkkunni.
Það gat nú varla verið að hjólið væri að klikka. Þetta hlaut að vera úr bílunum sem dóla í kringum mann í umferðinni . Svo einn daginn fann ég þennan frostlögsfnyk inni í skúr svo ég reif dótið utan af hjólinu til að skoða og viti menn kassinn farinn að leka. Ég hef nú ekki orðið var við að Súkkur geti klikkað svo þetta kom verulega á óvart. Nú voru góð ráð dýr.Fyrst var að kíkja á netið og sjá hvað svona kassi kostaði, úffff einmitt fleiri hundruð dollarar og gengið eins og það er.
Ég ákvað að tala við umboðið ( Suzuki á Íslandi ) og segja þeim frá þessu og athuga með ábyrgð á hjólinu. Þeir vildu endilega fá að kíkja á enda ekki á hverjum degi sem menn sjá bilaða (gallaða) Súkku svo ég hjólaði til þeirra
Móttökurnar voru fínar og hjólið í ábyrgð.Við pöntum nýjan vatnskassa og látum þig vita Þegar hann kemur var svarið hjá þeim Súkkumönnum .
Ég var varla búinn að snúa mér við þegar STEFÁN hringdi í mig til að láta vita að nýi kassinn væri kominn í hús. Ég renndi við hjá þeim, pikkaði hann upp og dundaði svo við þetta um jólin.
Svo nú er allt í standi og ég
þakka þeim hjá SUZUKI fyrir frábæra þjónustu .
kveðja, Börkur Gíslason #120
5.1.2009
FÉLAGSGJÖLD
Sælir félagar
Það eru ennþá nokkrir sem eiga eftir að greiða félagsgjöldin
fyrir árið 2008 og örfáir fyrir árið 2007.
Best er að greiða heimsendan gíróseðil
(uppl. í heimabanka)
eða millifæra inn á reikning klúbbsins.
Númer og kennitala eru á síðunni hér til hliðar.
Takk fyrir
Gjaldkerinn.


