Fréttir
30.4.2009
1. MAÍ
Brottför frá Olis Arnbergi kl. 12.00
Góða skemmtun
POSTULAR
Nú væri gott að fá sem flesta til að leggjast á bæn
og óska eftir góðu veðri.
Ég held að hjólarar afberi ekki aðra hópkeyrslu
í roki og rigningu.
Nú líður að árlegri hópkeyrslu Snigla sem verður sem fyrr föstudaginn 1. maí næstkomandi.
Safnast verður saman við Korputorg kl 13:00, raðað upp, sagðar sögur ef einhver hefur frá einhverju að segja og ýmislegt annað gert til að drepa tímann. Lagt verður af stað stundvíslega kl 14:00 og ekið einhverja leið niður að Kirkjusandi og lagt á gamla SVR planinu.
Nú er um að gera að stífabóna græjuna. Sjáumst vonandi sem flest og gerum okkur glaðan dag.
29.4.2009
AFMÆLISRÚNTUR
JÆJA GOTT FÓLK
VEÐURSPÁIN VIRÐIST VERA ÞOKKALEG
FYRIR SMÁ AFMÆLIS HJÓLATÚR
ANNAÐ KVÖLD.
Liðið úr borginni
FER FRÁ RAUÐAVATNI KL: RÚMLEGA 19.00
ef það verður fært
SJÁUMST
svo á olis Arnbergi og
hjólum smá
AFMÆLISRÚNTUR
9 ára
Það verður fróðlegt að sjá hvernig veðrið verður
á afmælisdaginn þetta árið.
Í fyrra var svo kalt að það var hjólað alla leið
á Kaffi Kidda Rót og þótti mörgum nóg um.
Oft höfum við nú harkað af okkur og hjólað
Árborgarhringinn með stoppum á sem flestum bæjum.
Postular
Hittumst hress og hjólum góðan afmælisrúnt
fimmtudaginn 30. apríl kl.20
Einhverjar uppástungur
Hvert þið viljið hjóla??
26.4.2009
Money Money
HÆHÆ NÚ FER AÐ
STYTTAST Í AÐ FÉLAGSGJÖLDIN
FARI Í INNHEIMTU
ÞIÐ HAFIÐ NOKKRA DAGA TIL
AÐ MILLIFÆRA
FÉLAGSGJÖLDIN
Fyrir árið 2009.
Komið þið sæl. Nú er komið að því.
Við höfum sama fyrirkomulagið og í fyrra.
Við gefum ykkur kost á að leggja (millifæra)
félagsgjaldið inn á reikning klúbbsins og losna
þar með við aukagjöld.
Þið hafið apríl til að gera skil á gjaldinu með þessum hætti .
Eftir það sendum við út greiðsluseðla.
Vonandi leggst þetta vel í ykkur félagar góðir.
Félagsgjaldið er ennþá kr. 2500.-
Reikningsnúmerið er: 586-14-101384
Kennitalan er: 540801-2820
Gott væri að nafn og félagsnúmer væri á innlegginu ef hægt er.
p.s. þeir sem skulda klúbbnum eitthvað annað
mega alveg leggja það inn í leiðinni.
Hjólakveðja Aurapúkinn
26.4.2009
FERÐALAG
FÆREYJAR
MEÐ NORRÆNU
Eru einhverjir að huga að hjólaferð
til Færeyja eða jafnvel lengra?
Þá getur verið fróðlegt að kíkja á linkinn hér fyrir neðan.
Færeyjaferð
#120
25.4.2009
SKOÐUN
Óskoðuð hjól
Bifhjólafólk athugið!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Þeir sem eru enn með 08 miða þ.e. óskoðað geta lent í því að klippt verði af hjólunum þegar mætt verður til hópaksturs þar sem lögreglan stjórnar!!! Þetta kom fram á fundi með Umferðastofu og lögreglu þann 22/4.
Endilega komið þessum skilaboðum áleiðis.
24.4.2009
SUMAR
ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR
Það var nú engin sumarsæla í hjólatúrnum í gær
rok,rigning og skítakuldi.
Samt var sæmilegur hópur sem hafði ekki vit á því að hætta við
og lét sig hafa það að hjóla upp á Skaga.
Ég var einn þeirra ásamt nokkrum öðrum Postulum
og kanski 100 hjólurum í viðbót.
Best hefði verið að halda sig heima næstbest að fara göngin
og verst að fara Hvalfjörðinn sem varð raunin. Það bjargaði því
sem bjargað varð í þessu skítaveðri að fá Kakó og meðlæti
hjá þeim í Mörkinni.
Best hefði verið að halda sig heima, því nú dugar ekki að
nota veðrið sem afsökun lengur það tekur náttúrulega enginn mark á því.
p.s. Það hefur sennilega ekki rignt mikið á parketkallinn
Takk fyrir daginn
kv. #120
23.4.2009
GLEÐILEGT SUMAR
Postular og allir hinir.
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.
Vonandi verður þetta gott hjólasumar
hjá okkur öllum.
Kveðja
Stjórnin
21.4.2009
FUNDUR
FUNDUR
Jú einmitt það var fundur hjá okkur í kvöld
og það kvittuðu 15 í bókina góðu. Þar af
voru 9 eða 10 á hjólum
Flott hjólaveður, það er sennilega
alveg að koma sumar. Sjáumst á
fimmtudaginn.
19.4.2009
23.apríl
Sumardagurinn fyrsti
Postular sem ætla að hjóla í bæinn og
taka þátt í Sniglakeyrslunni hittast á
Olis Arnbergi og hjóla saman
til Reykjavíkur á Shellstöðina v/Vesturlandsveg.
leggjum af stað frá Olis kl. 11 með smá stoppi
í Litlu kaffistofunni og síðan sem leið liggur
á Shellið
GÓÐA SKEMMTUN

