Fréttir
29.9.2009
Fundur
FUNDUR
Það var ferkar fámennt á fundinum í kvöld.
Við fórum þrjú úr bænum og hittum nýja formanninn
aleinan á Olis.
Síðan bættust fjórir til viðbótar í hópinn svo að úr varð
átta manna fundur með kaffi, nammi og ís á línuna.
Hjólin í kvöld voru aðeins fjögur, tvö á hvoru.
Kveðja #120
27.9.2009
Gaman að skoða
21.9.2009
Árshátíð
Árshátíð Postula 2009
Við héldum árshátíðina okkar í Tryggvaskála um helgina.
Okkur fannst hún takast ljómandi vel, vonandi eru flestir
sammála því. Biggi og Hanna lögðu allan sinn metnað í
að skreyta salinn og var útkoman glæsileg.
Á meðan kokkarnir voru að græja matinn og fólkið
að koma sér fyrir bauð Einráður upp á leynigest.
Gestirnir fóru um víðan völl í ágiskunum og með smá
hintum frá sumum var giskað á réttan mann sem var
Marlboromaðurinn.
Þá var komið að matnum sem bragðaðist ljómandi vel
eins og við var búist. Svo var það happdrættið
með mörgum glæsilegum vinningum sem gengu allir
út. Baldur stóðst ekki mátið og skellti sér í uppboðsjúniformið
og bauð upp nokkra hluti við góðar undirtektir.
Meðan á þessu stóð spilaði Jón Disco undir
af sinni alkunnu snilld.
Þegar hér var komið við sögu
voru það viðurkenningarnar.
Þær komu í hlut eftirtalinna félaga.
Félagi ársins: Guðmundur Svavarsson #28
(Fyrir ómælda góðvild til handa klúbbnum t.d. þegar okkur
hefur vantað veitingar í okkar frægu Postulagrill)
Nýliði ársins: Kristján Kristjánsson #198
(Var duglegastur að hjóla með okkur af þeim sem gengu í klúbbinn í fyrra)
Hjólari ársins: Pálmar Guðmundsson #176
(Hann er svakalegur kílómetrasafnari og mætti á næstum
alla fundi hvernig sem veður var)
Útlit ársins: Hermann Österby #95
(Nú auðvitað fyrir Merina sína, fullt af myndum af henni víðsvegar á síðunum)
Atriði ársins: Börkur Gíslason #120
(Fyrir að fótbrjóta sig, kyrrstæður, þetta er náttúrulega brandari hjá stjórninni)
Það þarf að sjálfsögðu ekki að útskýra hvers vegna
þessir aðilar urðu fyrir valinu.
Til hamingju með verðlaunin.
Jón Disco hélt svo uppi fjörinu langt fram eftir eða þangað til Grétar #57 tók fram gítarinn.
Við þökkum þeim kærlega fyrir sem styrktu okkur með happdrættisvinningum. Einnig þökkum við gestunum fyrir frábæra skemmtun.
Kveðja stjórnin.
p.s. það eru nokkrar myndir frá helginni á myndasíðu Barkar
hlekkur inná hana neðar á síðunni
20.9.2009
Aðalfundur
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Postula var haldinn í Tryggvaskála í gær þ.19.09 ´09.
Fundurinn hófst með því að velja fundarstjóra (Mummi Jóns #168)
og ritara (Hanna #142). Þá var það yfirferð formanns um starfsemi
klúbbsins síðastliðið ár. þar kom í ljós að við höfum gert
ýmislegt okkur og öðrum til skemmtunar.
Næst voru reikningar lagðir fram af gjaldkera og voru
þeir samþykktir einróma. Síðan var umræða um krakkakeyrslurnar,
snerist hún um það hvort við ættum að hætta eða halda þeim áfram.
Flestir vilja nú halda áfram að hjóla með börnin enda hefur
það mælst vel fyrir.
Skipuð var afmælisnefnd vegna tíu ára afmælis Postula sem
verður á næsta ári.
Það voru áhugasamir félagar sem buðu sig fram í nefndina.
Þeir eru Baldur #1, Birgir #9 og Aðalbjörn #98.
Breyting var gerð á stjórninni í þetta sinn en þeir Kristján #33,
Birgir #9 og Baldur #1 óskuðu eftir að losna úr stjórn og að sjálfsögðu
var orðið við þeirri bón. Inn í stjórn koma Guðmundur Kr. Jónsson #168, Vígsteinn Gíslason #157 og Ólafur Björnsson #110.
Við bjóðum þá velkomna og þökkum
Baldri, Bigga og Stjána fyrir vel unnin störf.
Þá var það inntaka nýrra félaga og voru þeir tólf í þetta skiptið.
Þeir voru látnir keppa í tímþraut með göngugrind og stóðu sig með stæl.
Velkomnir í klúbbinn.
#120
18.9.2009
Árshátíðin
JÆJA, NÚ ER ÞETTA AÐ BRESTA Á.
GÓÐA SKEMMTUN.
ÁRSHÁTÍÐ POSTULA
2009
Þetta árið verður hátíðin haldin í Tryggvaskála.
19. september kl. 20.00.
Húsið opnar kl. 19.00.
Grillvagninn sér um kræsingarnar.
Matseðillinn er á þessa leið:
Glóðarsteikt lambalæri.
Purusteik.
BBQ kjúklingur.
Meðlæti.
Gratineraðar kartöflur.
Ristað grænmeti.
Salat m/feta.
Hunangssinnepssósa.
Rjómalöguð púrtvínssósa
og ýmislegt fleira.
Vín með matnum.
Kaffi og konfekt.
Happdrætti til styrktar góðu málefni.
Ágætis vinningar í boði.
Dregið verður úr aðgöngumiðum, einnig verða
miðar seldir á staðnum.
POKABALL
Jón (Disco) Bjarnason heldur uppi fjörinu
eins og honum einum er lagið.
p.s. Enginn posi, aðeins tekið á móti seðlum.
17.9.2009
Aðalfundur
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Postula verður haldinn í
Tryggvaskála 19. september 2009 kl. 14.00.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Hér er 10. greinin úr lögum klúbbsins.
Lögin eru í heild sinni efst á síðunni.
10.gr. Aðalfundur
Rétt til setu á aðalfundi hafa: Fullgildir félagar.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis mættir fullgildir félagar.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Stjórn gefur skýrslu um starfsemi liðins árs
3. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs
4. Lagabreytingar samkvæmt 11.gr. laga samtakanna.
5. Kosning stjórnar
5. Önnur mál .
15.9.2009
Fundur
FUNDUR 15.09´09
Þá var það enn einn fundurinn í kvöld og fórum við fjórir saman austur og svo komu tveir í humátt á eftir okkur.
Það voru þrettán hjól á planinu þegar við komum sem sagt nítján í heildina, já einmitt nokkuð flókið . Og svo kom Stebbi #84 og var hann sá tuttugasti. Við úr bænum létum nægja að fara beinustu leið til baka enda farið að hausta á heiðinni. Jaxlarnir að austan voru óvenju brattir í kvöld, allavega sögðust þeir ætla að hjóla í kaffi til Nóa í Gunnarsholti. Vonandi hefur það verið góð ferð hjá þeim.
Takk fyrir kvöldið.
kveðja #120
10.9.2009
Árshátíð
ÁRSHÁTÍÐ
ÞEIR SEM ERU BÚNIR AÐ SKRÁ SIG EN EIGA
EFTIR AÐ BORGA
ERU VINSAMLEGAST BEÐNIR UM AÐ GRÆJA
ÞAÐ SEM FYRST.
ÞAÐ ERU NOKKRIR MIÐAR EFTIR
ENNÞÁ.
JÁJÁ DRÍFA SIG.
baldur@postular.com
10.9.2009
ÁRSHÁTÍÐ
Aðeins meiri upplýsingar um
hátíðina
Strákarnir á Grillvagninum sjá um kræsingarnar
og kannski splæsum við víni með.
Jón Disco ætlar að halda uppi stuðinu.
Hann hefur ekki klikkað hingað til.
Það er pláss fyrir 80-90 manns í mat.
(þröngt mega sáttir sitja)
Miðaverð er 2000.- á mann fyrir skuldlausa félaga og
maka þeirra
en 35oo.- fyrir aðra.
Þetta verður POKABALL
Húsið opnar kl.19.00.
MUNA AÐ SKRÁ SIG
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíðin þetta árið verður haldin í Tryggvaskála
þann 19. september. Hátíðin verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár.
Sem sagt góður matur,tónlist og skemmtilegheit
Núna verðum við að hafa þann háttinn á að fólk
skráir sig og staðfestir fyrirfram.
Fjöldi miða er takmarkaður vegna húsrýmis.
Nánari upplýsingar um miðaverð, dagskrá,
fjölda gesta sem komast fyrir í húsinu og
annað sem skiptir máli
koma fyrr en síðar.
Það ættu allir að komast fyrir en Postular og
makar hafa forgang til mánaðamóta.
Þið getið skráð ykkur á hátíðina með því að senda
tölvupóst á baldur@postular.com
með nafni, Postulanúmeri og fjölda miða.
Kveðja.
Stjórnin

